Fara í aðalefni

Samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91 frá 2008 er rekstur almennra grunnskóla á ábyrgð og kostnað sveitarfélaga. Þau bera ábyrgð á heildarskipan skólahalds í grunnskólum þeirra, þróun einstakra skóla, húsnæði og búnaði, sérúrræðum grunnskóla, sérfræðiþjónustu, mati og eftirliti, öflun og miðlun upplýsinga og á framkvæmd grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Þá er þeim skylt að sjá til þess að öll skólaskyld börn njóti skólavistar sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu eða hefur verið ráðstafað í fóstur til fósturforeldra. 
Skólaskylda er að jafnaði tíu ár en getur verið skemmri. Þannig er öllum börnum og unglingum að jafnaði á aldrinum 6–16 ára skylt að sækja grunnskóla. 

Uppfærður 3.10.2024

Sækja skjal um grunnskóla, netföng og vefsíður

Excel skjal

SkóladagatalSkólaárSkjal
Grunnskólar2023-2024Sækja skjal
Grunnskólar2024-2025Sækja skjal
Grunnskólar2025-2026Sækja skjal