Fara í aðalefni

Sam­band­ið

Samband íslenskra sveitarfélaga vinnur að eflingu íslenskra sveitarfélaga og að hvers konar hagsmunamálum þeirra. Verulegur hluti starfseminnar felst í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélögin gagnvart ríkisvaldinu og öðrum innlendum og erlendum aðilum. Sambandið mótar stefnu sveitarfélaganna til einstakra mála og hefur því náin samskipti við ríkisstjórn og Alþingi.

Aðalskrifstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga er á 5. hæð í Borgartúni 30 í Reykjavík. Opnunartími skrifstofunnar er frá kl. 09:00-15:00 alla virka daga.

Evrópuskrifstofa Sambandsins er á Square de Meeûs 1, B-1000 Brussel.

Nánar um Sambandið

Í sveitarstjórnarlögum er Samband íslenskra sveitarfélaga viðurkennt sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna og í gildi er sérstakur samstarfssáttmáli við ríkisstjórn Íslands, þar sem með formlegum hætti er kveðið á um samskipti þessara tveggja stjórnvalda.

Í lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga er tilgangi þess skipt upp í fimm meginþætti, sem eru:

  • Að vera sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna í landinu og vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra og samstarfi.
  • Að þjóna sveitarfélögum á sviði vinnumarkaðsmála, annast kjarasamningsgerð og hafa fyrirsvar í kjaramálum fyrir þau sveitarfélög sem veita umboð sitt til þess, hafa frumkvæði að rannsóknum og sinna upplýsingagjöf, eftir því sem við á.
  • Að vera fulltrúi íslenskra sveitarfélaga gagnvart ríkisvaldinu og öðrum innlendum aðilum, eftir því sem við á.
  • Að vera fulltrúi íslenskra sveitarfélaga gagnvart erlendum samtökum um sveitarstjórnarmál, alþjóðastofnunum og öðrum þeim aðilum erlendis, er láta sig sveitarstjórnarmálefni skipta.
  • Að vinna að almennri fræðslu um sveitarstjórnarmál með ráðstefnu-, námskeiða- og fundahaldi og útgáfu- og upplýsingastarfsemi fyrir sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélaga.