Vinnufundur formanna með ríkissáttasemjara í dag
13. nóvember 2024
Samninganefndir Sambandsins og Kennarasambands Íslands hafa unnið sitt í hvoru lagi undanfarna daga, og munu formenn Samninganefndar Sambandsins og KÍ funda síðar í dag hjá ríkissáttasemjara, en verkföll kennara hafa staðið yfir frá 29. október.
Samninganefnd Sambandsins ítrekar samningsvilja sinn og vonast eftir uppbyggjandi og gagnlegum samtölum á næstu dögum við félögin fimm um þau málefni sem standa út af.