Fara í aðalefni

Form­leg­ur fund­ur í kjara­deilu við KÍ hjá rík­is­sátta­semj­ara á morg­un

18. nóvember 2024

Samninganefndir Sambandsins og Kennarasambands Íslands munu hittast á formlegum fundi hjá ríkissáttasemjara á morgun, en formenn samninganefnda hafa fundað óformlega undanfarna daga.

Verkföll kennara hafa staðið yfir frá 29. október. Samninganefnd Sambandsins ítrekar samningsvilja sinn og vonast eftir uppbyggjandi og gagnlegum samtölum á næstu dögum við félögin fimm um þau málefni sem standa út af.