Sambandið
Yfirlýsing frá Sambandinu vegna launahækkana formanns og stjórnar
9. mars 2025
Vegna umræðu um kjör formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga er ástæða til að skýra betur breytingar á launakerfi formanns og stjórnar sem tóku gildi í byrjun árs 2024. Þær tölur sem hafa birst í fjölmiðlum og Sambandið gaf frá sér upphaflega gefa ekki rétta mynd af launaþróun formanns Sambandsins.
Breytt launakerfi
Fyrir breytingarnar hlaut formaður tvöföld stjórnarlaun fyrir setu í stjórn auk yfirvinnugreiðslna, sem voru að jafnaði 40 yfirvinnutímar á mánuði. Þessar yfirvinnugreiðslur voru hins vegar ekki teknar saman í þær tölur sem Sambandið sendi frá sér upphaflega og gefa því ekki rétta mynd af heildarkjörum formanns áður en breytingarnar voru gerðar.
Frá og með árinu 2024 er engin yfirvinna greidd fyrir aukavinnu eða aukafundi. Formanni er greidd föst upphæð sem nemur 50% af þingfararkaupi, enda er um umfangsmikið starf að ræða.
Aukin verkefni formanns
Mikil aukning hefur orðið í fundarhöldum stjórnar Sambandsins undanfarin ár. Áður voru um 10-11 fundir haldnir á ári, en árið 2023 voru þeir 24, árið 2024 voru þeir 20, og nú þegar hafa 11 fundir farið fram á þessu ári. Gert er ráð fyrir að fundir á árinu 2025 verði um 26.
Til viðbótar við stjórnarfundi fundar formaður reglulega með starfsfólki Sambandsins, sem og með bæjarstjórum og fulltrúum sveitarfélaga um land allt. Formaður situr einnig einnig fjöldan allan af ráðstefnum þar sem flutt eru ávörp í nafni Sambandsins. Að auki á formaður sæti í Þjóðhagsráði og Samstarfsráði ríkis og sveitarfélaga, þar sem unnið er að stefnumálum sveitarfélaga.
Á sama tíma og kjörum formanns og stjórnar var breytt var innleitt nýtt skipurit þar sem samninganefnd var færð beint undir stjórnina, sem hefur aukið vinnu stjórnar og formanns við kjarasamningsgerð.
Breytt umgjörð og aukin starfsemi Sambandsins
Breyting á kjörum stjórnar og formanns var samþykkt í stjórn Sambandsins eftir vinnu starfskjaranefndar sem tók allt framangreint inn í sína umræðu. Mat starfskjaranefndar var að vinna formanns Sambandsins samsvari um 50% starfi.
Leiðrétting á rangfærslum
Það er því ekki rétt að laun formanns hafi hækkað um 170% frá árinu 2023. Sambandi íslenskra sveitarfélaga þykir miður að rangar upplýsingar hafi farið út um kjör formanns á árunum 2022-2023 og biðst innilegrar velvirðingar á því.