Fara í aðalefni

Kjaramál

Reyna á lög­mæti verk­falls­að­gerða KÍ fyr­ir Fé­lags­dómi

3. febrúar 2025

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur höfðað mál fyrir Félagsdómi gegn Kennarasambandi Íslands og krefst þess að verkföll Kennarasambands Íslands, sem nú hafa skollið á að nýju, verði dæmd ólögmæt.

Sambandið telur að verkföllin brjóti í bága við ákvæði laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Í ákvæðinu felst að verkfall skuli ná til allra starfsmanna stéttarfélags hjá sama vinnuveitanda. Að mati Sambandsins eru verkfallsaðgerðirnar ólögmætar enda taka þær ekki til allra starfsmanna í viðkomandi stéttarfélagi sem starfa hjá sama sveitar­félagi. Þar að auki telur Sambandið að verkföll KÍ feli í sér ólögmæta mismunun enda standi þau í vegi því að hluti leik- og grunnskólabarna fái notið grundvallarréttinda sinna til menntunar, fræðslu og velferðar. Gangi verkföllin t.a.m. gegn jafnræðis- og meðalhófsreglum.

Sambandið hefur óskað eftir að málið fá flýtimeðferð fyrir Félagsdómi.