Skipulagsmál
Ný skýrsla um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi
27. febrúar 2025
Innviðaskuld á Íslandi er metin á 680 milljarða, og tæpur helmingurinn eða 283-344 milljarðar eru í eigu sveitarfélaga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um ástand og stöðu innviða á Íslandi. Skýrslan er unnin í samstarfi Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga þar sem sérfræðingar verkfræðistofa meta umfang, ástand og framtíðarhorfur innviða.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að vöxtur innviðakerfisins hafi ekki fylgt eftir vexti hagkerfisins. Hægur vöxtur innviðakerfisins sé hamlandi fyrir framtíðarvaxtarmöguleika hagkerfisins og getur haft alvarleg áhrif á verðmætasköpun, lífsgæði og samkeppnishæfni landsins.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
- Endurstofnvirði innviða á Íslandi er áætlað um 6.700 milljarðar króna sem jafngildir 147% af vergri landsframleiðslu. Þetta er hærra hlutfall en í flestum öðrum löndum og endurspeglar mikilvægi innviða fyrir íslenskt samfélag.
- Mikil innviðaskuld dregur úr lífskjörum landsmanna. Í skýrslunni kemur fram að uppsöfnuð viðhaldsskuld í innviðakerfinu er 680 milljarðar króna og vex hún með hverju árinu sem líður. Í sambærilegri skýrslu sem gefin var út fyrir fjórum árum mældist innviðaskuldin 420 milljarðar króna.
- Innviðaskuld sveitarfélaga nemur 283-344 milljörðum króna.
- Mest er uppsöfnuð viðhaldsskuld í vegakerfinu eða á bilinu 265–290 milljarðar króna, sem skiptist 200 ma. kr. vegna þjóðvega og 65-90 ma. kr. vegna sveitarfélagavega.
- Þjóðvegir á ábyrgð Vegagerðarinnar eru 12.900 km og sveitarfélagavegir á ábyrgð sveitarfélaga eru 13.100 km.
- Því næst er uppsöfnuð viðhaldsskuld í fráveitukerfi eða á bilinu 65 – 98 milljarðar króna, sem er metið út frá núgildandi reglugerð um fráveitur og skólp nr. 78/1999.
- Þriðja mesta uppsöfnuð viðhaldsskuld er í fasteignum í eigu sveitarfélaga eða um 95 milljarðar króna.
- Staða innviða hefur ekki batnað á undanförnum árum, sökum ónógar fjárfestinga og viðhalds. Þessi staða vekur upp spurningar um viðnámsþrótt samfélagsins og í því samhengi hvort innviðir hafi burði til þess að virka sem skyldi þegar á reynir. Nauðsynlegt er að bregðast við þessu með markvissum hætti.
- Með réttu má segja að viðhaldsskuldin sé form skuldasöfnunar af hálfu hins opinbera þar sem ríki og sveitarfélög eru að velta skuld yfir á komandi kynslóðir með því að fresta nauðsynlegu viðhaldi. Kostnaðurinn af slíkri skuldasöfnun fyrir samfélagið allt er mikill í formi minni afkastagetu og lægra þjónustustigs.
- Framtíðarhorfur eru metnar verstar fyrir vegakerfið, hafnir, vatnsveitur, flugvelli og lendingarstaði fyrir utan Keflavíkurflugvöll. Reiknað er með ef viðhaldi innviðanna verði ekki sinnt nægjanlega þannig að þeir munu ekki uppfylla kröfur og þarfir samfélagsins eftir 10 ár.
- Opinber fjárfesting og viðhald innviða getur reynst öflugt tæki til að örva útflutning og hagvöxt. Með því að ráðast í uppbyggingu og endurbætur á innviðum er hægt að skapa störf og styrkja stoðir efnahagslífsins.
- Með því að nýta þá möguleika sem fjárfesting í innviðum býður upp á er hægt að styrkja stoðir samfélagsins og leggja grunn að bættum lífsgæðum til framtíðar. Aukin innviðafjárfesting getur verið lykill að sjálfbærum hagvexti.
Skýrslan sýnir að fyrirliggur mikið verk framundan á höndum hins opinbera og sérstaklega hjá sveitarfélögum. Vaxandi innviðaskuld ásamt kröfum um aukið húsnæði, vegna fólksfjölgunar kallar á verulegar fjárfestingaþörf hjá sveitarfélögum. Sambandið hefur talað um að lóð er ekki það sama og lóð, ef byggja á upp nýtt íbúðahverfi þarf að byggja upp nýja innviði, vatns-, hita- og fráveitu, leikskóla, grunnskóla, götur ofl. Mögulegar leiðir til að styðja við og hvetja sveitarfélögin áfram við ný framkvæmdir og viðhald eigna er að afnema virðisaukaskatt af framkvæmdum.
Hægt er að nálgast skýrsluna hér. Vilji sveitarfélög fá aukið samtal við Samtök iðnaðarins um efni skýrslunar þá má hafa samband við Þórdísi Sveinsdóttur, sviðsstjóri þróunarsviðs Sambandsins, thordis@samband.is, eða Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðstjóra mannvirkjasvið hjá SI, johanna@si.is