Fara í aðalefni

Sveitarfélagaskólinn

Nám­skeið um verk­efna­stjórn­un

Sveitarfélagaskólinn efnir til námskeiðs um verkefnastjórnun MIÐVIKUDAGINN 12. mars nk. Fyrirlesari á námskeiðinu verður Þórdís Ósk Helgadóttir, fyrrum sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs Reykjanesbæjar.

12. mars 2025

Kl. 12:00

Skrá á viðburð

ATHUGIÐ AÐ NÁMSKEIÐINU ER FRESTAÐ TIL 12. MARS (VAR ÁÐUR 7. MARS).

Fyrirlesturinn nefnist: Verkefnahandbók Reykjanesbæjar. Kynning á verkefnahandbók og einföldu ferli við undirbúning og utanumhald verkefna.

Þórdís er með háskólagráðu í innanhússhönnun, viðskipta- og markaðsfræðum og meistaragráðu í verkefnastjórnun frá HÍ.  Hún hefur marktæka reynslu af verkefnastjórnun eftir margvísleg störf hjá Syrusson hönnunarhúsi, ferðaþjónustu hjá Nordic Visitor auk verkefna sem hún hefur unnið sjálfstætt sem verktaki. Í störfum sínum hjá Syrusson öðlaðist Þórdís einnig reynslu af samstarfi við sjálfstætt starfandi hönnuði og frumkvöðla sem unnið hafa að nýsköpun og verið þátttakendur í sýningarhaldi Syrusson s.s. í tengslum við HönnunarMars í Reykjavík.