Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Frá­bær mæt­ing á upp­lýs­inga­fund um FRIGG

21. janúar 2025

Frigg, miðlægur nemendagrunnur er spennandi verkfæri fyrir sveitarfélögin sem getur náð utan um öll grunnskólabörn í landinu.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga héldu upplýsingarfund vegna innleiðingar á nemendagrunninum Frigg. Fundurinn var haldinn á Teams mánudaginn 20. janúar. Frábær mæting var á fundinn en um 300 aðilar innan sveitarfélaganna sátu hann. Fulltrúar MMS fóru yfir lykilvörður í kerfinu. Sýnt var inn í viðmót stjórnenda ásamt því að fara yfir umsóknarferli forsjáraðila sem fer í gegnum Ísland.is. Sveitarfélögin munu fá góða handleiðslu og fræðslu í tengslum við verkefnið. Sambandið hefur unnið þétt með  MMS í verkefninu og eru hagsmunaaðilar sveitarfélaganna í því. Sambandið heldur áfram að vinna með MMS þegar kemur að innleiðingu og bæði Sambandið og MMS eru til staðar fyrir sveitarfélögin í þessari vegferð. Upptaka af fundinn er að finna á heimasíðu Sambandsins undir Viðburðir.