Fara í aðalefni

Endurmenntunarsjóður

End­ur­mennt­un­ar­sjóð­ur grunn­skóla hef­ur opn­að fyr­ir um­sókn­ir

28. janúar 2025

Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2025-2026. Umsóknarfrestur er til 3. mars 2025 kl. 15:00.

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) geta sótt um framlög úr sjóðnum.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.

Þeir sem ekki hafa aðgang að rafrænum skilríkjum geta sótt um notendanafn og lykilorð með tölvupósti á netfangið samband@samband.is áður en umsókn er fyllt út. Þeir sem hafa notað notendanafn og lykilorð sl. ár þurfa að endurnýja þau með því að senda beiðni á netfangið samband@samband.is.

Nánar á vefsíðu Endurmenntunarsjóðs.