Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Trygg­ir ferða­manna­skatt­ur aukna sjálf­bærni?

17. febrúar 2025

Samband íslenskra sveitarfélaga er stuðningsaðili í spennandi verkefni sem nýverið fékk vilyrði fyrir styrk frá Interreg áætlun Evrópusambandsins, The Northern Periphery and Arctic (NPA).

Ferðamenn fyrir utan Leifsstöð.
Ferðamenn fyrir utan Leifsstöð.

Verkefnið ber heitið Regenerative Economic Transfers for Universal Resilience in the North – RETURN RETURN-verkefnishópurinn samanstendur af sérfræðingum frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Svíþjóð, Noregi, Írlandi, Skotlandi og Finnlandi. Verkefnið er leitt af háskólanum í Lapplandi í Rovaniemi en fulltrúi Íslands í verkefninu er Rannsóknamiðstöð Ferðamála (RMF). Í verkefninu verður rannsakað hvort ferðamannaskattur geti verið grundvöllur sjálfbærar framtíðar samfélaga á norðlægum slóðum.

RETURN er þriggja ára samstarfsverkefni átta rannsóknastofnana og háskóla á NPA svæðinu og hefst 1. apríl 2025. Markmið þess er að efla getu samfélaga til að þróa ferðaþjónustu sem nærandi (regenerative) afl sem styrkir byggð og samfélag til framtíðar.

Ferðaþjónusta er orðin einn helsti drifkraftur  efnahagsþróunar á norðurslóðum en þessi vöxtur hefur einnig skapað áskoranir. Sveitarfélög hafa ítrekað bent á að aukin ferðaþjónusta valdi víða miklu álagi á innviði sem kalli á kostnaðarsamar umbætur án þess að tekjur fylgi á móti. 

„Ferðaþjónusta hefur ótvíræða möguleika á því að vera lífsviðurværi til framtíðar fyrir norðlæg samfélög en til þess þarf kerfi sem tryggja að hún styðji bæði náttúru og samfélag. RETURN miðar að því þróa ferðaþjónustu í sjálfbæru og gagnkvæmu samstarfi gesta og áfangastaða,“ segir Ari Laakso, vísindamiðlari við Arctic Centre, Háskólanum í Lapplandi og upphafsmaður RETURN.

Lykilmarkmið verkefnisins er að aðstoða sveitarfélög og yfirvöld við að þróa gagnsæjar og skilvirkar aðferðir til að nýta tekjur af ferðaþjónustu í innviðauppbyggingu, náttúruvernd og bætta þjónustu. Þetta tryggir ekki aðeins sanngjarna dreifingu ávinnings ferðaþjónustu heldur einnig stuðlað að aukinni ábyrgðarkennd og þátttöku ferðamanna. 

Fulltrúar RMF í RETURN eru Dr. Johannes Welling, rannsakandi og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður sem er tengiliður verkefnisins á Íslandi: gudrunthora@unak.is Auk Sambandsins er Markaðsstofa Vesturlands einnig þátttakandi í verkefninu.

Frekari upplýsingar um RETURN veitir Ari Laakso, verkefnisstjóri:  ari.laakso@ulapland.fi  +358(0)40-4844293.