Samninganefndir funda hjá ríkissáttasemjara
21. nóvember 2024
Samninganefndir kennara og ríkis og sveitarfélaga funda áfram hjá ríkissáttasemjara í dag, en er það þriðji dagurinn í röð þar sem boðað er til formlegs fundar í kjaradeilunni.
Í dag munu samningsaðilar halda áfram því samtali og vinnu sem hefur farið fram í vikunni. Samninganefnd Sambandsins ítrekar samningsvilja sinn gagnvart leik- og grunnskólakennurum og vonast eftir uppbyggjandi og gagnlegum samtölum á næstu dögum við félögin fimm um þau málefni sem standa út af.