Fara í aðalefni

Kjaramál

Kjara­samn­ing­ur við Fé­lag ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga und­ir­rit­að­ur

2. desember 2024

Þann 29. nóvember 2024 undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Frá undirritun kjarasamnings við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Frá undirritun kjarasamnings við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Samningurinn er í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið við aðila á vinnumarkaði á þessu ári og hækka laun í samræmi við þær hækkanir á samningstímanum ásamt öðrum þeim breytingum sem tóku gildi 1. nóvember s.l.

Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna Fíh. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 9. desember n.k.

Þess má til gamans geta að fjórir af fimm fulltrúum samninganefnda eru örvhentir.