Kjaramál
Kjarasamningur við Eflingu, stéttarfélag, undirritaður
29. október 2024
Þann 28. október 2024 undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Eflingar, stéttarfélags, nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samningurinn er í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið við aðila á vinnumarkaði á þessu ári og hækka laun í samræmi við þær hækkanir á samningstímanum. Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna Eflingar. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 13. nóvember n.k.
Saminganefndir sveitarfélaga og Eflingar eftir að samningurinn var undirritaður.