Fara í aðalefni

Kjaramál

Kjara­samn­ing­ar við tón­lista­kenn­ara í FÍH sam­þykkt­ir með mikl­um meiri­hluta

25. október 2024

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninga sem samninganefnd sveitarfélaga og tónlistarkennarar í Félagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) undirrituðu þann 18. október síðastliðinn er nú lokið.

Samningarnir voru samþykktir með miklum meirihluta greiddra atkvæða, eða 88,46%. Nei sögðu 11,21%. Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2024 til 31. mars 2028.

Helstu atriði kjarasamningsins eru launahækkanir í samræmi við þá samninga sem gerðir hafa verið við aðila á vinnumarkaði á þessu ári, og hækka önnur laun og aðrar uppbætur í samræmi við þær hækkanir á samningstímanum.