Mennta- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna á blaðamannafundi í Hannesarholti í gær.
Með fjórtán aðgerðum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi. Breiður hópur haghafa stendur samhentur að aðgerðunum og þeim verður hrint í framkvæmd af ríki, sveitarfélögum og lykilstofnunum.
Merki eru um að ákveðin ofbeldismenning sé að þróast meðal barna hérlendis og teikn eru á lofti um sömu þróun og hefur átt sér stað á mörgum Norðurlöndunum. Þróunin er áhyggjuefni sem þarf að bregðast við.
Aðgerðirnar eru fjórtán og snúa að forvörnum, inngripi og meðferð:
- Auka þverfaglega nálgun í ofbeldismálum meðal barna
- Styðja við meðferðarúrræði Barna- og fjölskyldustofu vegna biðlista
- Koma á verklagi fyrir ósakhæf börn og úrræðum fyrir börn sem beita alvarlegu ofbeldi
- Endurskoða meðferð mála og úrræða fyrir sakhæf börn
- Efla samfélagslögreglu
- Innleiða svæðisbundið samráð um allt land
- Efla Landsteymi Miðstöðvar mennta- og skólaþjónustu sem styður við börn, foreldra og skóla.
- Setja á fót úrræði fyrir ungmenni 16-17 ára sem eru hvorki í vinnu né námi (NEET)
- Efla ungmennastarf í Breiðholti
- Efla Flotann – flakkandi félagsmiðstöð
- Auka fræðslu og forvarnir
- Virkja foreldrastarf í umhverfi barna – SAMAN hópurinn
- Hefja alþjóðlegt samvinnuverkefni um sjálfbært samfélag
- Samhæfa aðgerðir og móta stefnu til framtíðar
Heildarkostnaður aðgerðanna er um 360 m.kr. yfir tveggja ára tímabil.
Aðgerðir verða framkvæmdar í víðtæku samstarfi mennta- og barnamálaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborgar, Barna- og fjölskyldustofu, embættis ríkislögreglustjóra og lögregluembættanna. Þessir aðilar mynda aðgerðarhóp sem hefur það hlutverk að leiða saman mismunandi aðila, samstilla aðgerðir og fylgja þeim eftir.
Aðgerðahópurinn metur árangur af aðgerðum reglulega og taka áherslur mið af árangri. Sömuleiðis verður stofnað til nýrra aðgerða eftir þörfum. Reglulegar stöðuskýrslur um aðgerðir og árangur verða nýttar til áframhaldandi stefnumótunar í málaflokknum.