Fara í aðalefni

Lýð­ræði og mann­rétt­indi

Sveitarfélögin bera ábyrgð á framkvæmd hins staðbundna lýðræðis. Sveitarstjórnir og almenningur leita stöðugt leiða til þess að efla lýðræði og auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarmálum. Einnig hafa sveitarfélög markað sér stefnu í mannréttinda- og jafnréttismálum.

Samband íslenskra sveitarfélaga fær mjög reglulega fyrirspurnir um mat á hæfi enda getur verið krefjandi að meta hvort vanhæfi sé til staðar sérstaklega í ljósi þess að skoða þarf samspil samþykkta, sveitarstjórnarlaga og stjórnsýslulaga.

Sambandið hefur því tekið saman leiðbeiningar fyrir sveitarstjónarfólk og nefndarfólk sveitarstjórna við mat á hæfi sem vonandi koma til með að auðvelda sveitarstjórnarfólki að leggja mat á hæfi sitt. 

Um hæfi og vanhæfi kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn:

Leiðbeiningar um mat á hæfi kjörinna fulltrúa sveitarstjórna

---

Handbók um íbúasamráð og þátttöku íbúa

Í nóvember 2017 gaf Samband íslenskra sveitarfélaga út Handbók um íbúasamráð og þátttöku íbúa sem sveitarfélög landsins eru hvött til að kynna sér og nýta.