Fara í aðalefni

Forvarnir

For­varn­ar­dag­ur­inn 2024

Hugum að verndandi þáttum og vellíðan í lífi barna og ungmenna með kærleik. Forvarnardagurinn 2024 verður settur í 19. sinn með málþingi í Inngunnarskóla í dag. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er þá sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Skólar skrá sig til þátttöku og vinna verkefni Forvarnardagsins á tímabilinu 2.-23. október.

Forsetinn myndar kærleikshring með nemendum 9. bekkjar Ingunnarskóla. Mynd: Skrifstofa forseta / Una Sighvatsdóttir.
Forsetinn myndar kærleikshring með nemendum 9. bekkjar Ingunnarskóla. Mynd: Skrifstofa forseta / Una Sighvatsdóttir.

Málþing Forvarnardagsins


Miðvikudagur 2. október, kl. 10:00.

Dagskrá málþings:
Skólastjóri býður gesti velkomna
Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs Embættis landlæknis

  • Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir
  • Landlæknir, Alma D. Möller
  • Formaður borgarráðs, Dagur B. Eggertsson
  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth:
    Ekkert um ykkur án ykkar
  • Rödd ungmenna: Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson og Karen Hulda Finnsdóttir fulltrúar úr ungmennaráði UMFÍ

Hægt er að nálgast streymi á máþingið hér. Upptaka af viðburðinum verður aðgengileg á vef Forvarnardagsins eftir málþingið.

Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn Forvarnardagsins og samstarfsaðilar eru embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Rannsóknir og greining, Planet Youth, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Samfés, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Bandalag íslenskra skáta, Ríkislögreglustjóri og Heimili og skóli.