Málþing um snjóflóð og samfélög verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði dagana 5.-6. maí 2025.
5. maí 2025
Edinborgarhúsið Ísafirði
Kl. 12:00
Íslensk samfélög búa yfir mikilli seiglu, ekki síst gagnvart áföllum, líkt og í mannskæðum snjóflóðum á Flateyri og í Súðavík 1995 og í Neskaupstað 1974. En hvað er það sem myndar seiglu í samfélagi og virkar verndandi þegar náttúruhamfarir dynja yfir? Á málþinginu verður sjónum beint að samfélögum á hættusvæðum, öryggi á vegum, uppbyggingu á ofanflóðavörnum í landinu og þeim áhrifum sem sú uppbygging hefur á þróun byggða. Einnig verður fjallað um endurskoðun á mögulegri hættu undir varnargörðum og þann lærdóm sem dreginn hefur verið af snjóflóðunum sem féllu á varnargarða á Flateyri í janúar 2020, þar sem hluti flóðanna barst yfir garðana, og í Neskaupstað í mars 2023 þar sem snjóflóð lentu á varnargörðum og keilum.
Meðal fyrirlesara eru:
- Harpa Grímsdóttir, deildarstjóri ofanflóðadeildar Veðurstofu Íslands,
- Elías Pétursson, formaður Ofanflóðanefndar,
- Þóroddur Bjarnason, prófessor við HÍ,
- Halla Ólafsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Ísafirði,
- Magni Hreinn Jónsson, fagstjóri ofanflóðahættumats hjá Veðurstofu Íslands,
- Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar,
- Edda Björk Þórðardóttir, dósent við Læknadeild HÍ og klínískur sálfræðingur,
- Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og
- Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum.
Þá munu fyrrverandi framkvæmdastjórar sveitarfélaga fara yfir áskoranir sveitarfélaga vegna ofanflóðahættu fyrr og nú.
Skipuleggjendur málþingsins eru Ofanflóðasjóður, Veðurstofa Íslands, Vegagerðin, Almannavarnir, Samband íslenskra sveitarfélaga, Byggðastofnun, Verkfræðingafélag Íslands og Snjóflóðasamtök Íslands.
Heimasíða málþingsins með frekari upplýsingum er Ofanflóð 2025 – Málþing um snjóflóð og samfélög
Opnað verður fyrir skráningu í byrjun mars. Þar verður tekið á móti bókunum á málþingið, í gistingu, skoðunarferð og kvöldverð. Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka strax flug.