Fara í aðalefni

Fund­ur með Úvinnslu­sjóði - greiðsl­ur vegna hreins­un­ar á plast­vör­um

Fundur með Úrvinnslusjóði – greiðslur vegna hreinsunar á plastvörum á víðavangi og úr ruslabiðum og greiðslufyrirkomulag fyrir sérstaka söfnun á fyrri hluta árs 2025.

4. nóvember 2024

Teams

Kl. 02:00

Úrvinnslusjóður í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til TEAMS fundar með tæknimönnum sveitarfélaga þann 4. nóvember 2024 klukkan 14:00 – 15:00. Smellið hér til að tengjast fundinum.

Sandra Brá Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs og Gunnlaug Einarsdóttir verkefnastjóri munu kynna fyrirkomulag við greiðslur vegna hreinsunar á plastvörum á víðavangi og úr ruslabiðum fyrir árin 2023 og 2024, samanber bréf dags. 26. september 2024.

Einnig verður kynnt breytt fyrirkomulag á greiðslum fyrir sérstaka söfnun á fyrri hluta ársins 2025, en um er að ræða tímabundið fyrirkomulag með það fyrir augum að auka afgreiðsluhraða á greiðslum til sveitarfélaga.

Gefinn verður kostur á fyrirspurnum. 

Ekki er þörf á að skrá sig sérstaklega.